Talað og hlustað - Samtal

Talað og hlustað verkefni , samtal.
Fjórar persónur.

Talnahús

Þúsundasti hluti til hundrað milljónir og allt þar á milli.

Orðaforði: þúsundasti hluti, hundraðshlti, tíundi hluti, eining, tugur, hundrað, þúsund, tugþúsund, hundrað þúsund, milljón, tug milljónir, hundrað milljónir.

Talnahús

Talnahús

Frá þúsundasta hluta til þúsund milljónir og allt þar á milli.

Orðaforði: þúsundasti hluti, hundraðshlti, tíundi hluti, eining, tugur, hundrað, þúsund, tugþúsund, hundrað þúsund, milljón, tug milljónir, hundrað milljónir.

Talnahús

Lítil krúttleg talnahús.

Orðaforði: eining, hundrað, tugur þúsund, tug þúsund, hundrað þúsund, milljón, tug milljónir, hundrað milljónir.

Talnalína

Talnalína með tölum 0 - 20.
Á blaðinu eru sex talnalínur sem þarf að klippa.
Mismunandi myndir á talnalínunum.

Talnalínur

Þrjár talnalínur.
Tölur 0 til 20, -10 til 10 og -20 til 0.
Fyrst koma þrjú blöð þar sem sex eins talnalínur eru á blaði.
Aftast er eitt blað með öllum talnalínunum.
 
Talnalínurnar eru í stærðinni 4 x 19,5 cm.

Talnalínur

Þrjár talnalínur.
Tölur 0 til 20, -10 til 10 og -20 til 0.
Fyrst koma blöð þar sem þrjár eins talnalínur eru á blaði.
Aftast er eitt blað með öllum talnalínunum.
 
Talnalínurnar eru í stærðinni 5,4 cm x 27,5.

Tengslakönnun

3 kannanir og úrvinnslublað.
* Hjá hverjum vilt þú sitja?
* Hverjum vilt þú vinna með?
* Með hverjum leikur þú eftir skóla?
Úrvinnslublaðið er einfalt.
Nafn nemandans sem fyllir út blaðið er í miðjunni.
Hægra megin eru skráðir þeir sem sá nemandi velur.
Vinstra megin eru skráðir þeir sem velja þennan nemanda.

Teningaritun

Allt sem þarf í þessa ritunarkveikju er teningur og ímyndunarafl.
Söguna má svo spinna í tölvu, á blað eða munnlega. 
Skemmtilegt og einfalt verkefni sem vekur ávallt lukku og kveikir á ímyndunaraflinu!

Teningaspil

Teningaspil 1 - 70. Reglur eins og í slönguspili.

Teningaspil - frádráttur

Teningaspil þar sem nemendur eiga að draga frá.
Lítil spjöld.
Fjögur spjöld fyrir nemendur.
Auk þess þurfa nemendur að fá tvo teninga og 10 hluti t.d. kubba fyrir hvern spilara til að leggja á tölurnar.
 
Nemendur fá tvo teninga. Þeir eiga að nota þá sem tölur í dæmi og draga frá. Ef svarið er á þeirra spjaldi setja þeir kubb á töluna. Sá sem fyrstur fyllir spjaldið vinnur.
 
Stærð: Tvö spjöld á A4 blaði sem þarf að klippa.
Hentugt að plasta fyrir notkun.

Teningaspil - frádráttur

Teningaspil þar sem nemendur eiga að draga frá.
Fjögur spjöld fyrir nemendur.
Auk þess þurfa nemendur að fá tvo teninga og 10 hluti t.d. kubba fyrir hvern spilara til að leggja á tölurnar.
 
Nemendur fá tvo teninga. Þeir eiga að nota þá sem tölur í dæmi og draga frá. Ef svarið er á þeirra spjaldi setja þeir kubb á töluna. Sá sem fyrstur fyllir spjaldið vinnur.
 
Stærð: A4
Hentugt að plasta fyrir notkun.

Teningaspil - Samlagning

Teningaspil þar sem nemendur eiga að leggja saman tvær tölur.

Stór spjöld.

Fjögur spjöld fyrir nemendur.
Auk þess þurfa nemendur að fá tvo teninga og 10 hluti t.d. kubba fyrir hvern spilara til að leggja á tölurnar.
 
Nemendur fá tvo teninga. Þeir eiga að nota þá sem tölur í dæmi og leggja tölurnar saman. Ef svarið er á þeirra spjaldi setja þeir kubb á töluna. Sá sem fyrstur fyllir spjaldið vinnur.
 
Stærð: A4 hvert spjald.
Hentugt að plasta fyrir notkun.