Stafsetning / t eða d?

Átján spjöld þar sem skrá á t eða d svo orðið verði rétt.
Átján spjöld þar sem skrá á t eða d svo orðið verði rétt.
Spjöldin eru á tveim A4 blöðum sem þarf að klippa niður.
Gott er að plasta blöðin fyrst og klippa síðan.
Nemandi dregur spjald og skrifar með tússi réttan staf á strikið.
Nemendum hefur þótt tilbreyting að vinna verkefni á þennan hátt.
Auðvelt er að útvíkka verkefnið og láta nemendur síðan skrifa orðin í bók eða á blað.
Erfiðari útfærsla gæti verið að láta nemendur skrifa málsgrein sem inniheldur orðið.
 
Hægt er að nota þetta verkefni með öðrum sambærilegum verkefnum.