Lestur og lesskilningur - eldri

Kvikmyndarýni - Astrópía

Lestur, lesskilningur, myndlæsi, málfræði, orðaforði, ritun og framsögn / tjáning.
Unnið með kvikmyndina Astrópía.

Kvikmyndarýni - Star Wars

Star Wars æði hefur gripið um sig að nýju. Það er því tilvalið að skoða aðeins sögu þessarar gríðarvinsælu kvikmyndaseríu. Heildstætt verkefni með fróðleik um myndirnar og handritshöfundinn í bland við smá lesskilning, málfræðigrúsk og ritun.

Marie Curie

Af spjöldum mannkynssögunnar.
Fróðleikur, lesskilningur, orðarýni.i.
Texti um vísindamanninn Marie Curie ásamt lesskilningsverkefni og orðarýni.
Unnið með lýsingarorð.

 

Hægt að nálgast textann með stærra letri.

Napóleon Bónaparte

Af spjöldum mannkynssögunnar.
Fróðleikur, lesskilningur, orðarýni, ritun, endursögn og málfræði.
Texti um Napóleon Bónaparte Frakklandskeisara ásamt lesskilningsverkefni og orðarýni.
Unnið með sagnorð.

 

Hægt að nálgast textann með stærra letri.

Nelson Mandela

Af spjöldum mannkynssögunnar.
Fróðleikur, lesskilningur, orðarýni, endursögn og málfræði.
Texti um Nelson Mandela ásamt lesskilningsverkefni og orðarýni.
Unnið með lýsingarorð.

 

Hægt að nálgast textann með stærra letri.

Ólympíuleikar - VERKEFNAHEFTI Eldri

Fróðleikur og verkefni um Ólympíuleikana. 
Lestextar, lesskilningsæfingar, ritun, orðarýni, upplýsingaöflun og grúsk.

 

Punktar fyrir bókakynningu

Framsögn og tjáning. Kynning á bók.
 Minnispunktar og undirbúningur fyrir munnlega kynningu á bók.

Sprett úr spori - verkefnabók

VERKEFNABÓK er fylgir lestrarbókinni Góður dagur - Sprett úr spori. 
Fjölbreyttar lesskilnings-, málfræði- og ritunaræfingar. 

20 bls.

Hægt er að kaupa lestrarbókina Sprett úr spori í BÓKSÖLU 123skoli.is

Bókaflokkurinn GÓÐUR DAGUR hentar vel ​fyrir lengra komna lestrarlærlinga.
Hér segir frá kátum strákum og stelpum sem upplifa ljúfa daga við leik og störf.

 Lestu brot úr lesbókinni.

Hægt er að panta lestrarbækurnar með því að nálgast PÖNTUNARLISTA - fylla inn pöntun og senda  á [email protected]

AÐRAR BÆKUR Í BÓKAFLOKKNUM
Krækiber og kóngulær
Veiðiferðin

Umfjöllun um bók - Bók um bók

Nemandi les eina bók á mánuði og fyllir út formið Bók um bók. 
Lesandi fjallar um aðalpersónur, sögusvið sögunnar, atburðarás og leggja í lokin sitt mat á bókina.

Tilvalið að nota þegar nemandi hefur náð góðum tökum á lestri og hefur fengið kynningu á helstu bókmenntahugtökum.
Getur hentað vel sem uppbrot á hefðbundnum daglegum heimalestri eða sem lestrarprógramm yfir árið, ein bók á mánuði.

Skjalið er A4 en sniðugt er að gera litla A5 bók (booklet) sem nemendur safna svo saman yfir veturinn.

Leiðbeiningar
Að gera A5 - Booklet í ljósritunarvél:

  • Veldu Booklet Printing í prentstillingum.

  • Veldu duplex (tvíhliða prentun) með bindingu á miðju / short edge.

  • Prentaðu sem:
    A4 landscape með broti (fold & staple) ef það er í boði.

Umræðuspjöld - Lestur eldri nemenda

12 spjöld.
Kveikjur að bókmenntaumræðum. 

Upplýsingakapphlaup - Kína

Nemendur vinna saman í hópum og fá afmarkaðan tíma til að afla upplýsinga um Kína. 

Veiðiferðin - Verkefnabók

VERKEFNABÓK er fylgir lestrarbókinni Góður dagur - Veiðiferðin.
Fjölbreyttar lesskilnings-, málfræði- og ritunaræfingar.

20 bls.

Hægt er að kaupa lestrarbókina Veiðiferðin  í BÓKSÖLU 123skoli.is

Bókaflokkurinn GÓÐUR DAGUR hentar vel ​fyrir lengra komna lestrarlærlinga.
Hér segir frá kátum strákum og stelpum sem upplifa ljúfa daga við leik og störf.

 Lestu brot úr lesbókinni.

Hægt er að panta lestrarbækurnar með því að nálgast PÖNTUNARLISTA - fylla inn pöntun og senda  á [email protected]

AÐRAR BÆKUR Í BÓKAFLOKKNUM
Veiðiferðin

Sprett úr spori

Verkefnahefti - Játningar mjólkurfernuskálds

Umræðupunktar og verkefnahefti við bókina Játningar mjólkurfernuskálds eftir Arndísi Þórarinsdóttur.

UM BÓKINA: Játningar mjólkurfernuskálds er drepfyndin saga um fermingarstúlku á villigötum, bleikklæddar kennarasleikjur og svarthærða gothara, sæta spurningakeppnisnörda – og allar spurningarnar sem er svo erfitt að svara.
Útgefandi: Forlagið

MEIRA um höfundinn og verk hans 

Þorrinn - lesskilningsverkefni.

Átta síðna verkefnahefti um þorra, þorrablót og þorramat.

Verkefnaheftið er byggt upp með stuttum textum og verkefnum sem á eftir koma.

þorrinn, þorrablót, þorramatur, þorrablót, matvinnsluaðferð, bónadagur, þorraþræll, góa, góuþræll, súrsun, söltun, reyking, söltun, þurrkun, kæsing,