Stafadominó með bókstaf og mynd.
Hvert spjald er með mynd og staf. Byrja þarf á að klippa eins og línur segja til um. Öllu ruglað saman og byrjað að spila.
Hvert spjal er með mynd og staf. Á fyrsta spjaldi stendur byrja og við llið þess er bókstafur. Nemandi leggur spjaldið niður og finnur síðan spjald með mynd sem passaar við stafinn. Á því spjaldi er mynd og stafur. Nemandi finnur þá mynd sem passar við þann staf. Þannig heldur lengjan áfram þar til öll spjöldin eru búin.
Spjöldin hér eru í sömu röð og heimalestur Omma er. Hægt að nota hluta af spilunum til að byrja með eftir því sem búið er að leggja inn stafina.
Auðvelt er að vera einn í þessu spili en meira gaman að hjálpast að.
Góð tilbreyting getur verið að hafa keppni milli hópa um að klára dóminóspilið.
Gott að plasta áður en klippt er.